Fríða

Fríða Björk Gylfadóttir eða “Fríða” eins og hún er kölluð, er búsett á Siglufirði ásamt eiginmanni sínum og syni.

Hún ólst upp í Reykjavík og hefur verið að teikna og skapa síðan hún man eftir sér.

Fríða sótti nokkur námskeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur sem krakki. Það nám opnaði dyrnar að mörgum tilraunum til frekari sköpunar.
Árið 1974, þá 14 ára, lék hún í 3 sjónvarpsþáttum sem voru gerðir eftir sögu Halldórs Laxness, Paradísarheimt. Þetta var frábær lífsreynsla fyrir Fríðu, svona unga og gaf henni nýja sýn á tilveruna.
Um svipað leyti hóf Fríða að gera tilraunir með hattagerð, sem hún stundaði á gagnfræðaskólaárunum við góðar undirtektir. Flestir voru þeir í anda langömmu hennar sem átti og rak hattabúð í Reykjavík, á sínum tíma.
Eftir flutning á Siglufjörð, árið 1993, hóf Fríða að teikna og mála aftur, eftir langt hlé. Lífið úti á landi gaf góðan og mikinn kraft og verkin urðu æ fleiri og fjölbreyttari. Fyrstu vinnustofuna opnaði Fríða því árið 2003. Árið 2006 opnaði Fríða síðan núverandi vinnustofu sína að Túngötu 40a, Siglufirði.

Sýningar:
1998 Suðurgötu 10, Siglufirði
2000 Ráðhúsi Siglufjarðar
2007 Startart listamannahús, Reykjavík
2007 Gerðuberg, "Handverkshefð í hönnun"

Birtingar:
2003 Hús og híbýli, mars blað, myndir af lampaskermum
2007 Morgunblaðið, 06.07.07, mynd af mjaltastólnum


Markmiðið er að búa til skemmtilega muni og myndir sem gaman er að eiga.

Fríða Gylfadóttir.
Túngötu 40a,
580 Siglufirði,
s:467-1173 gsm:896-8686,
e-mail: frida@frida.is